» 1 hafa sagt sína skoðun
» 0 hafa sagt sína skoðun
Á föstudaginn fengum við að vaka lengur en venjulega. Um kvöldið horfðum við á Waterboy og hún var mjög fyndin og skemmtileg. Svo á laugardaginn fór mamma í Reykjavík að kaupa jólagjafir. Hún keypti boxer og skyrtu fyrir mig og Patta fyrir jólin en boxer nærbuxunar og skyrtan voru ekki jólagjafir. Ég, Aníta og Patti horfðum svo á Little Nicky svo þegar myndin var að vera búin fór ég með pabba á æfingu. Svo þurftum við að fara snemma að sofa af því að það var mót morguninn eftir. Svo á sunnudaginn fórum við á mótið sem hét Njarðvíkurmót. Við lentum í 2 sæti. Leikirnir fóru svona
Keflavík 1-1 FH, Afturelding 1-1 Keflavík, Keflavík 2-1 Njarðvík, Keflavík 3-1 Valur og Reynir/Víðir 1-1 Keflavík. Þegar Leonard skoraði þegar 4sek. voru eftir gegn Njarðvík hoppuðum við allir ofan á hann og fögnuðum mjög mikið.Svo þegar mótið var búið fengum við 2 pizzur og coke. Pabbi var ekki liðstjóri núna vegna þess að hann var meiddur í hægri ökklanum en Annel eldri var liðstjóri í staðinn og hann var bara ágætur.
» 3 hafa sagt sína skoðun
Á laugardaginn fór ég og Patti á æfingu með pabba. Eyþór kom svo á æfinguna og við fórum í flöskustút og Eyþór þurfti að kalla yfir salinn: ÉG ELSKA YKKUR ÖLL. Svo þegar við fórum heim kom Finnur í mat. Eftir matinn fórum við að spila Pictionary. Ég og pabbi vorum saman í liði, Patti og Finnur og svo mamma og Aníta. Ég og pabbi unnum. Svo voru bara hin liðin eftir. Ég fór í stelpu liðið og pabbi í hitt stráka liðið. Ég og pabbi unnum, Patti og Finnur leni í öðru sæti og svo mamma og Aníta lenti í síðasta sæti.
» 2 hafa sagt sína skoðun
Á föstudaginn pössuðum við Ásgeir Orra og það var rosa gaman. Hann kom með okkur á æfingu og á leiðinni á æfingu fékk ég að keira kerruna hanns hálfa leið og Patti hálfa leið. Á meðan ég og Patti vorum á æfingu var Ásgei Orri að leika sér út um allt. Það héldu allir að Ásgeir Orri væri bróðir okkar. Og þegar æfingin var búin fórum við í hoppukastalann og þegar við vorum búinn að vera soldið lengi var Aníta að reyna að ná okkur út úr hoppukastalanum en hún náði okkur ekki. Það endaði með því að hún fór bara sjálf uppí kastalann að reyna að ná okkur. Svo fórum við út úr honum og fórum heim. Þegar við vorum komin heim fórum við að leika okkur við Eyþór. Gylfi spurði hvort hann væri ný fæddur. Svo fór Eyþór heim og ég, pabbi og Patti að skoða nýja húsið hjá Þórunni og Magga á meðann mamma og Ásgeir Orri biðu heima. Ásgeir átti að sofa hjá okkur en Þórunn náði í hann.
Í dag vorum ég, Patti og mamma að gefa fuglunum og þeir réðust á mömmu og reyndu að ná brauðinu af henni og hún þurfti að kalla á mig og Patta. Mamma fór svo á undan okkur í bílinn út af því að henni var svo kalt á höndunum og svo eftir nokkrar mínútur komum við inn í bílinn.
Á þriðjudaginn fengum við einkunirnar og ég var bara ánægður með þær..
Ég fékk 9,5 í málfræði, 7,5 í lestur, 8,0 í skrift, 10,0 í stafsetningu og 7,5 í stærfræði.
Í dag vorum ég, Patti og Eyþór úti í allan dag. Við fórum upp í íþróttahús að horfa á fimleikamót. Svo fórum við eitthvað stutt í burtu frá íþróttahúsinu. Eyþór fann gólfkylfu og var að sveifla henni og missti hana og hún fór í fótinn á patta.Svo fór ég á æfingu með pabba en patti var heima ég fór á eftir æfinguna til ömmu og afa útaf því að pabbi spilaði aðra æfingu svo kom mamma og sótti mig.
Þegar mamma kom heim frá Danmörk fengum við fullt af nammi, hálsmen og flott og þægileg föt haha: Mamma sýndi okkur myndir sem hún tók í Danmörku. Svo keypti hún föt á Anítu sem voru alltof stór á hana. Svo keypti mamma eitt par af hönskum handa pabba
mamma fór til Danmörku á föstudaginn og þegar hún kemur heim kemur hún með eitthvað handa okkur. Svo um kvöldið fórum við til ömmu í mat. Það var kjúlli í matinn. Svo borðuðum við snakk og Ásgeir Orri var alltaf að dýfa saltstöngum í ídýfuna og mata mig og ömmu.Svo á laugardeginum fór pabbi á æfingu og Eyþór kom með okkur. Svo þegar við komum heim náði Finnur í pizzuna, hann og Lilja borðuðu hjá okkur. Þegar við vorum búin að borða fór Finnur heim og Aníta og Lilja fóru í bíó á Transporter 2. Þegar þau voru farin fengum ég, Patti og pabbi okkur snakk og jólaöl og horfðum á Terminator 3.
Ég var að fá nýa síðu í dag. Pabbi hjálpaði mér að búa hana til. Ég fór á æfingu í dag. mamma skutlaði mér en ég labbaði heim.Svo kom pabbi heim kl.5:00. Við borðuðum pizzu í kvöldmat.